laugardagur, 18. maí 2013
Rigning, axels bonfire og trukkar!
Dagurinn byrjaði á því að ég vaknaði klukkan átta fyrsti dagurinn sem ég valnaði klukkan átta. Venjulega hefði ég vaknað klukkan sjö en núna klukkan átta. Það var mikil rigning yfir daginn. Svo kom spurning dagsins"hvert eigum við að fara út að borða." Ég sagði Applebees, Elísabet, Hlöðver og afi sögðu Outback stakehouse og pabbi sagði Red lobster. En við vorum ekki viss hvaða mat maginn á ömmu gat þvolað, en við vorum að fara þangað til að halda upp á útskriftina hans pabba. En svo fórum við um fimm leitið og keyrðum af stað aðeins pabbi vissi hvert við vorum að fara. Hlöðver spurði mikið á leiðinni hvert við værum að fara, en fékk ekki að vita það. Á leiðinni fórum við í gulur bíll en það voru næstum engir gulir bílar svo að við fórum í I SPY WIH MY LITTLE EYE og svo stoppuðum við á axels bonfire. Pabbi pantaði fyrir mig nautakjöt sem var æðislega gott. Svo fengu ég og Hlöðver sunday og fórum svo heim. Þegar við komum heim var klukkan um það bil átta. Svo að við fórum að horfa á netflix. Svo fór Hlöðver að sofa og ég stuttu eftir það.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Hæ dúlla. Gott að þú skemmtir þér svona vel.
SvaraEyðaVið vorum í matarboði og vorum að koma heim .
Hugrún gistir hjá okkur í kvöld.
knús á þig ...mamma