laugardagur, 1. júní 2013
Bíó kvöld
Í gær vorum við öll mjög skrýtin okkur leið öllum svo illa. Við ætluðum að hitta Terrie og Debbie í kvöldmat en við vorum ekki vel upplögð. Pabbi hringdi í þau og sagði þeim hvað hefði gerst og þau skildu það og við hættum við að fara í kvöldmat. En fórum í Wallmart upp í Pine ég, pabbi, afi og amma, náðum í nýju gleraugun hans afa og keyptum í matinn og fyrir bíó kvöldið. Fórum heim og borðuðum nautasteik og sesam fræja kjúkling. Svo borðuðum við snakk og nammi og horfðum á myndina "krippendorf's tribe" eftir þá mynd horfðum við á endan á "puss in bots" svo fórum við bara að sofa.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Svona er lífið stundum erfitt.
SvaraEyðaEn henni Lömmu líður betur og við
þurfum að horfa á það og hugga okkur
við það !!!
Heyrumst sem fyrst elskan mín.
knús mamma